Já verið marg blessuð og sæl!
langt síðan ég hef bloggað hér en ég sé að Nína og Andrea hafa
tekið við af mér að vissu marki mættu samt vera duglegri spurning
hvort við eigum að hætta bara með þessa síðu hvað segið þið?
En aðal efnið er það að ég ætlaði að segja ykkur frá
gærdeginum!
Því miður get ég ekki sett neinar myndir fyrr en ég er búin að
framkalla á ekki diggitalmyndavél
L'UÐI
En allavana þá voru allir mjög prúðbúnir í gær ekki afþví að nýr
Jesú var að fæða nei ég get sagt ykkur það að það var vegna þess að
Nemó var í gær þá eiga allir að vera í sínu fínasta pússi og
byrjaði bekkurinn minn heima hjá Ester hinni mögnuðu og fengum
bakarísmat þar snúða, kleinuhringi og rúnstykki ásamt fleiru
góðgæti og getum við þakkað honum Halla fyrir það
Síðan lá leiðin
á leiksýninguna en ég náði að rústa myndavélinni minni þarna á
milli en laga hana einning þarna á milli
Leiksýningin var æðibiti get ég sagt fullt af góðum húmor og
skemmtilegheit og voru leikararnir firstclass haha já segum það
en svo dreif maður sig bara heim hún Auður bekkjó systó skutlaði
mér heim því hún er æðislegust. Ég dreif mig þá bara í dressið sem
mamma góða var búin að sauma fyrir mig svartu kjóll eða eigum við
að segja FROCK var að læra þetta orð haha þýðir kjóll. Maður var
orðinn rosa fínn og sætur og pabbi skutlaði mér niðrí Iðnó því við
borðuðum matinn þar en nei munaði ekki bara 3 cm eða eitthvað að
bíll hefði dúndrað á mig þegar ég var að hlaupa yfir götuna en það
bjargaðist.
Ég laug að krökkunum að þau ættu að mæta hálf 7 því ég er farin
að þekkja þau það vel ég mætti reyndar sjálf of seint eða 10 mín í
7 og þá voru bara tveir komnir segiði svo að ég þekki ykkur ekki
nógu vel haha
í rauninni átti að mæta 7 en ég kann á liðið svo
kom síðasta manneskjan hálf 8 sem er dáldið seint meða við að við
sögðum hálf 7 en svo þegar þessari dýrindismáltíð var lokið með
sveppasúpu í forrétt, lambafille eða kjúkling í aðalre´tt og
vanilluís með súkkulaði í eftirrétt tókum við bara næstu rútu í
hfjinn þar sem sandra æðibiti hélt fyrirparty það var svaka stuð
þar og fór ég ásamt auði og dodda í party svo hjá T bekknum og
kynntist ég þó nokkrum þar t.d brynjari og brynjari, þresti, magga
og gumma en mis mikið
svo var fullt af fólki´sem maður þekkti úr
leikfimi síðan í fyrra ásamt fleirum. Síðan lá leiðin bara á ballið
og hef ég aldrei dansað afn mikið og skemmti mér konunglega enda er
þetta konungsborinn dagur NEmó þar að segja en skoðið endilega
myndir á www.rugl.is( Halli
þakkaðu mér seinna fyrir auglýsinguna haha
)